Um kórinn
Upplýsingar
| Tími | Staður |
|---|---|
Þriðjudaga 17:30 - 20:00 |
Söngleikjakórinn Viðlag var stofnaður árið 2020 og er að stórum hluta skipaður fagfólki á sviðum sviðslista og tónlistar. Kórinn hefur skapað sér sérstöðu með áherslu á íslenska textagerð, skapandi sviðssetningar og kraftmikla framkomu.
Viðlag samdi og setti upp glymskrattasöngleikinn Við erum hér í Tjarnarbíói á leikárinu 2024-2025. Viðlag hefur komið fram á Opnunarhátíð Hinsegin daga, útihátíð Hinsegin daga ásamt Bashar Murad og í hátíðaruppfærslu á Góðan daginn, faggi á stóra sviði Þjóðleikhússins, auk fjölda tónleika. Kórstjóri kórsins er Axel Ingi Árnason.