
Viðlag
Gleðisveitin Viðlag er íslenskur söngleikja- og sviðslistakór sem sækir innblástur í Glee-hefðir vestanhafs. Síðustu verk kórsins eru m.a. metnaðarfull uppfærsla af Sondheim-verkinu Sweeney Todd (haust 2026), Við erum hér (2024-2025) og ýmsar kórsýningar sem dansa á mörkum kórtónleika og sviðslistaverka.
Lesa meira
Sweeney Todd
Sweeney Todd, rakarinn illi á Fleet Street, snýr aftur til Lundúna úr útlegð sinni í Ástralíu — og kemst að því að allt sem hann elskar hefur verið tekið frá honum. Í slagtogi við bökugerðarkonuna Frú Lóett nær hann hefndum og grunlausir borgarbúar gæða sér á bókstaflegum afrakstri hefndarverkanna.
Söngleikjakórinn Viðlag hefur getið sér gott orð fyrir kraftmikinn kórsöng og líflegan flutning. Kórinn ræðst nú ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, en margrómað verk tónskáldsins Stephens Sondheim er nú fært í nýjan búning, í öflugri tónleikauppfærslu með nýjum kórútsetningum Axels Inga Árnasonar.
Í aðalhlutverkum eru Arnar Hauksson og Ylfa Marín Haraldsdóttir. Leikstjóri verksins er Vala Fannell. Höfundur texta og tónlistar er Stephen Sondheim. Handritið er eftir Hugh Wheeler, byggt á leikriti Christophers Bond. Íslensk þýðing er eftir Gísla Rúnar Jónsson.














