Um kór okkar
Upplýsingar
Kór Hallgrímskirkju var stofnaður haustið 2021 og telur um 60 manns. Kórinn hefur frá stofnun tekið þátt í helgihaldi í Hallgrímskirkju ásamt því að sinna tónleikahaldi og upptökum. Hann leggur mikið upp úr flutningi á íslenskri kórtónlist og stuðlar að nýsköpun með frumflutningi nýrra tónverka. Kórinn hefur átt í gjöfulu samstarfi við Barokkbandið Brák, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Steinar Logi Helgason er stjórnandi Kórs Hallgrímskirkju.