Um kórinn
Upplýsingar
| Tími | Staður |
|---|---|
Mánudaga 19:30 - 22:00 |
Kórinn var stofnaður 16. október árið 2002 og hefur tekið þátt í margvíslegum verkefnum á tónlistarsviðinu. Kórinn sjálfur heldur 2-3 tónleika árlega sem og öðrum verkefnum. Þannig hefur kórinn sungið á jólatónleikum Kristjáns Jóhannssonar, með Kristni Sigmundssyni, Óperukór Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands svo dæmi séu tekin. Karlakór Kópavogs tók einnig þátt í uppsetningu á leikverkinu Njálu í Borgarleikhúsinu í leikstjórn Þorleifs Arnarsonar þar sem Árni Heiðar Karlsson var tónlistarstjóri.
Karlakórinn er aðili að Kötlu, sambandi sunnlenskra karlakóra, og hefur tekið þátt í kóramótum á þess vegum frá stofnun kórsins.
Haustið 2010 tók kórinn þátt í Kötlumóti sem haldið var á Flúðum. Þar var einnig sungið í sameinuðum kór og í það skiptið við undirleik Stórsveitar Suðurlands. Haustið 2005 tók Karlakór Kópavogs þátt í Landsmóti karlakóra sem haldið var í Hafnarfirði og söng þar m.a. í sameinuðum karlakór allra þátttökukóranna við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Í tilefni 10 ára afmælis kórsins heimsótti kórinn vini okkar og frændur í Færeyjum í október 2012. Sungið var bæði í Klaksvík, vinabæ Kópavogs, og í Þórshöfn.
Árið 2017 ferðaðist kórinn til Ítalíu og söng þar á völdum stöðum í og í kringum Bolzano.
Árið 2024 heimsótti kórinn Þýskaland og ferðaðist og söng í kringum Wiesbaden. Með kórnum söng Viðar Gunnarsson sem söng sig inn í hjörtu Þjóðverja í Wiesbaden nú líkt og á árum áður.
Vorið 2026 hélt kórinn í söngferð til Edinborgar og hélt tónleika í St. Giles sem og Princess Street Gardens.
Söngstjóri er Sigurður Helgi
Formaður er Jón Þór Pétursson
