Um kórinn

Iceland

44 Meðlimir

Upplýsingar

Æfingartími og staðsetning
TímiStaður

Miðvikudaga

19:30 - 21:30

Mörk, hjúkrunarheimili/Nursing home
ÁR kórinn eða Árnesingakórinn í Reykjavík var stofnaður 14. febrúar 1967. Kórinn hefur ferðast víða í áranna rás, til allra Norðurlandanna, Þýskalands, Austurríkis, Ítalíu, Lettlands, Englands, Ungverjalands, Póllands og fyrrum Tékkóslóvakíu. Auk þess hefur hann haldið fjölda tónleika víða um land og tekið þátt í kórastefnum. Fyrsti stjórnandi kórsins var Þuríður Pálsdóttir sópran. Frá 1988 til vors 2000 var Sigurður Bragason barítónsöngvari og tónskáld stjórnandi kórsins en haustið 2001 tók Gunnar Ben við stjórn kórsins og stjórnaði honum til vors 2018. Haustið 2021 tók Hildigunnur Einarsdóttir mezzósópran við. Með Hildigunni við stjórn tók kórinn þátt sem gestakór í hinni skemmtilegu "City of Derry International Choir Festival" á Norður Írlandi haustið 2023. Sumarið 2025 ferðaðist kórinn fara aftur til Ítalíu og syngja á nokkrum vel völdum stöðum. Haustið 2026 tók Þóra Marteinsdóttir lagahöfundur með meiru við kórnum.      Kórinn hefur gefið út fjóra hljómdiska og tvær hljómplötur. Nýjasti hljómdiskurinn "Landróver" kom út í nóvember 2016.